Skýrsla stjórnar FLH starfsárið 2009
Stjórnin hefur fundað reglulega yfir árið og eru fundir samtals 11 á árinu.
Félagsstarf
Leiklistarsamband íslands efndi til fundarraðar á útmánuðum í fyrravetur þar sem leikhúsfólk fjallaði um kreppuna. Við tókum að okkur að stýra einum þessara funda og fengum Þórdísi Elvu til sjá um fjörið. Hún valdi síðan nokkra frummælendur úr okkar hópi og var mjög vel mætt og talsverðar umræður um hlutverk leikskáldsins í kreppunni. Sjá nánar á heimasíðunni.
Félagsfundur var haldinn í maí þar sem boðið var upp á almennar umræður um höfundarhlutverkið í leikhúsinu og utan þess. Líflegar umræður urðu og mæting sæmileg en skýrslu ritara af þessu fundi má lesa á heimasíðunni.
Norrænt samstarf
Ný heimasíða norrænu leikskáldasamtakanna NGW var opnuð í apríl. Þetta er mikilvægur vettvangur sameiginlegra sjónarmiða og hagsmuna leikskálda og handritshöfunda á Norðurlöndunum og þó ekki sé kominn löng reynsla á þetta þá lofar það góðu. Á ársfundi NDU tók Hávar Sigurjónsson að sér umsjón með síðunni til 6 mánaða þar sem báðir ritstjórarnir hurfu til annarra starfa í sumar.
Formaður sat ársfund NDU í Bergen í september þar sem höfundarréttarmál og samningar voru efst á dagskrá. Það er mikilvægt fyrir okkur að fylgjast vel með þessu þó vissulega hafi Svíarnir forgöngu um þessi mál enda með stærstu skrifstofuna og flesta lögfræðingana í vinnu.
Talía
Loftbrú leikhúsfólks var lögð niður tímabundið í fyrrahaust þegar bankarnir hrundu. Þá voru til umtalsverðir peningar í sjóði sem ekki var ljóst hvernig yrði ráðstafað. Á seinni hluta þessa árs var samin önnur reglugerð fyrir sjóðinn til að peningarnir gengu ekki til baka.. Nauðsynlegt er að ná samstarfi við flugfélag og Iceland Express hefur sýnt því áhuga. Ennfremur er hugmyndin að víkka út úthlutunarreglurnar þannig að einstaklingar geti sótt um styrk til ferðalaga vegna starfsdvalar erlendis, kynninga á verkum sínum eða til að sækja námskeið. Kemur þetta okkar félögum eflaust til góða.
FSE
Fyrsta heimsþing handritshöfunda var haldið í Aþenu dagana 6-8. nóvember á vegum FSE. Þangað komu um 200 handritshöfundar víðs vegar að úr Evrópu, Norður-Ameríku og Suðurálfu og deildu reynslu sinni hvert með öðru. Héðan fóru Sjón og Hávar en Sveinbjörn var þar líka í hlutverki sínu sem varaforseti samtakanna. Þetta var frábær samkoma og mjög fróðleg og má lesa skýrslu undirritaðs á norrænu heimasíðunni.
Stjórn FSE hefur nýlega samþykkt ályktun sem send verður til íslenskra stjórnvalda þar sem eindregið er lagst gegn áformum um að skera niður framlög til kvikmyndagerðar á Íslandi.
Samningar
Allir samningar við Atvinnuleikhúsin standa fyrir sínu og höfum við ekki heyrt af neinum undanbrögðum við þá. Í september áttum við í samningaviðræðum við Þjóðleikhúsið um túlkun á einni grein samningsins þar sem um er að ræða greiðslur fyrir barnaleikrit styttri en klukkutíma. Ágreiningurinn snérist um hvort lækkað miðaverð ætti að endurspeglast í lægri launum höfundar. Þessu höfnuðum við alfarið og niðurstaðan varð sú að fyrir verk sem ekki ná klukkutíma lengd eru greiddir ¾ hlutar af fullum höfundarlaunum.
Samningar við framleiðendur kvikmynda- og sjónvarpsefnis eru enn ekki komnir á koppinn og erum við farin að verða langeygð eftir því. Eftir áramótin verður settur saman harðsnúinn hópur sjónvarpshöfunda úr okkar röðum undir stjórn Sjón sem mun herja á framleiðendur um að ganga frá samningi.
Heimasíðan
Lénssherra okkar, Benóný Ægisson lét af umsjón heimasíðunnar í sumar eftir tíu ára óeigingjarnt starf. Eru honum færðar innilegar þakkir fyrir starfið og sérstaklega vinnu við að færa inn upplýsingar um íslensk leikrit sem hvergi finnast nú annarstaðar. Okkur óx í augum kostnaður við hönnun nýrrar heimasíðu en á endanum fengum við vefsíðufyrirtækið Davíð og Golíat til að taka þetta að sér fyrir lítið og þessi vinna hefur staðið yfir undanfarnar vikur. Nú er heimasíðan nánast tilbúin og fer í loftið á næstu dögum. Auk gagngerrar útlitsbreytingar þá felst meginbreytingin í því að nú fær hver félagi sitt aðgangsorð og ber eftir það óskoraða ábyrgð á sínu svæði. Enginn annar getur hróflað þar við neinu nema með hans leyfi.
Við höfum einnig hugsað okkur að heimasíðan verði virkari frétta- og upplýsingaveita og mun stjórnin skipta með sér verkum um ritstjórnina.
Frankfurt 2011
Við Bjarni áttum fund með Halldóri Guðmundssyni 15. desember um hlut leikskálda í kynningu á íslenskum bókmenntum í Frankfurt 2011. Skemmst frá að segja að allir leikritahöfundar sem fengið hafa sett upp eftir sig 2 leikrit eða fleiri í atvinnuleikhúsum eru beðnir um senda upplýsingar um sig og verk sín á Rakel, starfsmann bókmenntakynningarinnar í Frankfurt sem allra fyrst. Þessu verður komið á heimasíðuna. Einnig verið útbúinn listi yfir öll íslensk leikrit sem þýdd hafa verið á þýsku og flutt í þýskumælandi landi.
Valin verða 10 íslensk nútímaleikrit til kynningar fyrir útgefendum í Þýskalandi með útgáfu í huga. Eitt þýskt forlag hefur þegar lýst áhuga á að gefa út bók með 4 íslenskum leikritum og kemur hún væntanlega út á næsta ári. Standa vonir til að peningar fáist til að styrkja þýðingar á þessum leikritum. Staðið verður faglega og hlutlægt að valinu.





