Heima

Kolbrún Halldórsdóttir kjörin forseti BÍL

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þau tíðindi gerðust á aðalfundi BÍL sem haldinn var í Iðnó sl. laugardag, að Kolbrún Halldórsdóttir var kjörin forseti bandalagsins í stað Ágústs Guðmundssonar sem gegnt hefur embættinu frá 2006. Framboð Kolbrúnar var nokkuð óvænt og var ekki tilkynnt fyrr en fundarstjóri Jakob Magnússon hafi nánast slegið því föstu að Ágúst væri sjálfkjörinn í þriðja sinn þar sem ekki væru aðrir frambjóðendur. Það steig Karen María Jónsdóttir í pontu og skoraði á Kolbrúnu að gefa kost á sér og varð hún við áskoruninni. Ekki var laust við að þetta kæmi fundarmönnum fyrir sjónir sem fyrirfram skipulagður leikþáttur og þótti mörgum sem hreinlegra hefði verið að Kolbrún tilkynnti um framboð sitt fyrir fundinn og gæfi þar með sitjandi forseta tækifæri til að undirbúa sig fyrir kosningu. En í lögum BÍL er ekkert sem hindrar svo óvænt útspil og því var gengið til kosninga og niðurstaðan varð sem áður segir.

Ágúst hefur gegnt embætti forseta BÍL með sóma og tók við því með stuttum fyrirvara eftir að Þorvaldur Þorsteinsson þáverandi forseti varð að hverfa frá vegna veikinda eftir aðeins rúmt ár í embætti. Félag leikskálda og handritshöfunda vill færa Ágústi þakkir fyrir vel unnin störf í þágu BÍL.

Við bjóðum Kolbrúnu Halldórsdóttur velkomna til starfa og væntum mikils af henni. Kolbrún hefur sýnt í störfum sínum sem þingmaður undanfarin 10 ár að hún er fylgin sér og þekkir refilstigu stjórnmálanna og stjórnkerfisins. Listrænn ferill hennar er glæsilegur og sjálf sagði hún í þakkarræðu sinni að hún hefði lagt tíu ára lykkju á leið sína sem þingmaður en væri nú komin heim aftur í fang listarinnar. Við tökum hana á orðinu og segjum: Velkomin heim, Kolbrún