Á næstu dögum og vikum verða frumsýnd nokkur ný íslensk leikrit sem vert er að gefa gaum. Í Hafnarfjarðarleikhúsinu æfir Lab Loki leikritið Ufsagrýlur eftir Sjón. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson og frumsýning er fyrirhuguð í lok janúar. Í Borgarleikhúsinu er stutt í frumsýningu á Fást í uppsetningu Vesturports og fylgir sögunni að hér sé alls ekki um gamla leikrit Göthes að ræða heldur nýtt handrit byggt á sögunni um Fást sem selur Kölska sál sína. Það er leikhópurinn undir stjórn Gísla Arnar Garðarssonar sem er skrifaður fyrir verkinu. Félagarnir Jón Atii Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson og Hallur Ingólfsson eru langt komnir með sýninguna Góðir Íslendingar sem er eins konar sjálfstætt framhald þeirrar stórgóðu sýningar Þú ert hér sem þeir frumsýndu í fyrravetur. Í Þjóðleikhúsinu eru æfingar hafnar á Kjúklingunum, nýju leikriti eftir Braga Ólafsson, sem Stefán Jónsson leikstýrir og er stefnt að frumsýningu í lok febrúar.
Þá má nefna loks nefna að leikfélagið Hugleikur frumsýnir Hannyrðir þann 16. janúar, sem er nýtt leikrit eftir Sigurð H. Pálsson.





