Útvarpsstjóri segi af sér
Það var húsfyllir á mótmælafundi á Hótel Borg í gærkvöldi sem kvikmyndagerðarfólk efndi til vegna niðurskurðar í rekstri RÚV. Félag Leikskálda og handritshöfunda tekur heilshugar undir þau sjónarmið sem fram koma í ályktuninni sem fundurinn samþykkti og vill hnykkja á þeirri kröfu að útvarpsstjóri segi af sér ef hann telur sér ekki fært að fara að lögum um stofnunina.
„Þessi fundur fordæmir þann ójöfnuð sem fram kemur í 35% lækkun framlaga til kvikmyndasjóða á fjárlögum 2010 sem er fordæmalaus niðurskurður í íslenskum menningariðnaði. Jafnframt fordæmir fundurinn hótanir stjórnenda RÚV um að draga verulega úr innkaupum á íslensku efni. Með slíkum aðgerðum brjóta stjórnendur þær menningarlegu og lagalegu skyldur sem þeim eru lagðar á herðar sem og óskir eigenda sina og áhorfenda sem vilja vandað íslenskt efni. Treysti stjórnendur RÚV sér ekki til að reka almannaútvarp og sjónvarp samkvæmt lagaramma og vilja þjóðarinnar, þá ber Páli Magnússyni og öðrum yfirmönnum RÚV að segja af sér."





