
Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45.
Á þinginu verður kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála. Tilgangur þingsins er að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem gætu nýst í áframhaldandi vinnu við mótun menningarstefnu til framtíðar.
Einnig verður kynnt sóknaráætlun stjórnvalda í menningarmálum og nýleg menningarneyslukönnun.
Dagskrá
12.30 Skráning
13:00 Setning; Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra
13.10 Framsöguerindi:
- Kynning á skýrslu um núverandi menningarstefnu. Dr. Haukur F. Hannesson listrekstrarfræðingur
- Kynning á menningarmálum í Sóknaráætlun 20/20.
- Kynning á menningarneyslukönnun. Gunnar J. Árnason sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti
14.00 Starf vinnuhópa
15.30 Kaffi
16.00 Samantekt
16.45 Ráðstefnuslit
Á þinginu verður unnið í vinnuhópum með fjóra málaflokka sem eru:
- listir
- menningararfur og söfn
- fjölmiðlar
- íþrótta- og æskulýðsmál
Við skráningu þurfa þingfulltrúar að velja einn af málaflokkunum. Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á þingið og í hópana á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis eigi síðar en 26. apríl.
Menningarþingið er öllum opið en nauðsynlegt getur reynst að takmarka þátttöku vegna húsrýmis en ráðstefnusalurinn tekur 200 manns í sæti.
Aðgangur er ókeypis.





