Heima

Allir á svið?

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Fugl

Stefnumót sviðslista- og skólafólks laugardaginn 24. apríl klukkan 10 – 14

Leiklistarsamband Íslands og Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010 standa sameiginlega að þessu málþingi þar sem stefnt verður saman listafólki, kennurum og öðrum áhugasömum um sviðslistir og skólastarf.

Staðsetning: Víkin-Sjóminjasafnið Grandagarði 8, 101 Reykjavík.
Málþingið er ókeypis og opið öllum.

Skráning er möguleg á Fésbókarsíðu viðburðarins:

http://www.facebook.com/allir á svið

 

VIÐFANGSEEFNI:

Börn og sviðslistir

Ættu öll íslensk börn að fá tækifæri til að stunda og njóta sviðslista sem hluta af sinni skólagöngu?

Er hugsanlegt að aukin áhersla á greinar eins og leiklist og dans geti svarað kalli samtímans eftir fjölbreyttara skólastarfi og áherslu á skapandi og gagnrýna hugsun?

Þingið er í formi nokkurra örstuttra erinda sem öll varpa ljósi á stöðu sviðslista í íslenskum skólum og barnamenningu. Hverju erindi lýkur á spurningu til fundarins.

Frummælendur þingsins eru:

Peter Anderson, dansari.

Pétur Eggerz frá Möguleikhúsinu.

Soffía Þorsteinsdóttir, leikskólastjóri á Sæborg og formaður Faghóps
listgreinakennara í leikskólum ásamt Arndísi Gísladóttur kennara.

Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg.

Ólafur Guðmundsson, leiklistarkennari í Hlíðaskóla og félagi í FLÍSS (Félagi
um leiklist í skólum).

Vigdís Jakobsdóttir frá Fræðsludeild Þjóðleikhússins.

Þátttakendur málþingsins ræða spurningar frummælenda í litlum hópum og gera í kjölfarið sameiginlegar tillögur að vegvísum til framtíðar. Leiklistarsambandið mun að málþingi loknu koma þessum vegvísum til þeirra aðila sem geta haft áhrif.

Mögulegt verður að kaupa súpu og kaffiveitingar á vægu verði á staðnum.

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 22. apríl 2010 17:39 )