Heima

TAKIÐ VEL EFTIR: Úthlutun úr IHM-sjóði!

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

peningar

Í samræmi við reglur um ráðstöfun greiðslna frá Innheimtumiðstöð gjalda auglýsir RSÍ hér með eftir umsóknum um fjárframlög úr svonefndum IHM-sjóði Rithöfundasambandsins.

Rétt til úthlutunar eiga rithöfundar, leikskáld, þýðendur og handritshöfundar verka sem flutt hafa verið í sjónvarpi eða hljóðrituð síðustu tvö almanaksár. Um úthlutun geta sótt allir þeir sem telja sig eiga rétt, án tillits til félagsaðildar. Höfundum handrita fræðslu- og heimildarmynda er bent á að sækja um til Hagþenkis - félags höfunda fræðirita og kennslu gagna.

Með umsóknum fylgi yfirlit um birt verk umsækjanda í sjónvarpi eða hljóðvarpi 2008 og 2009, taka skal fram lengd flutnings í mínútum og hlutfall ef höfundar eru fleiri en einn.

Umsóknir skulu berast Rithöfundasambandi Íslands, Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, 104 Reykjavík fyrir 15. maí nk. Netfang RSÍ er: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 05. maí 2010 18:19 )