
Hugarflugsfundur Bandalags íslenskra listamanna sem var haldinn í sal FÍH við Rauðagerði í 24. apríl undir yfirskriftinni „Getur þín sköpun skipt sköpum?“ þótti takast vel. Yfir 100 listamenn úr aðildarfélögum BÍL sátu fundinn og skeggræddu um listina og samfélagið. Fundarmenn unnu á 11 borðum og fylgdu fyrirmælum stjórnanda fundarins; Lárusar Ýmis Óskarssonar. Í fundarlok lögðu fundarmenn á hverju borði fyrir sig fram stutta setningu sem ætlað var að lýsa vinnunni á viðkomandi borði. Á heimasíðu BÍL má lesa nánar þau „þykkni“ sem til urðu úr umræðunni, sjá HÉR .





