Heima

Fjölísviðurkenningar 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

hlin

Hinar árlegu Fjölís-viðurkenningar, voru veittar á aðalfundi Rithöfundasambands Íslands, 29. apríl, en fé til þeirra rennur úr sjóði sem þóknun fyrir áætlaða ljósritun í skólum og stofnunum skilar Rithöfundasambandinu. Þær voru að þessu sinni fjórar að tölu en þar af rennur ein til Íslensku þýðingarverðlaunanna.

Meðal styrkþega í ár er Hlín Agnarsdóttir, félagi í Félagi leikskálda og handritshöfunda. Um hana sagði Pétur Gunnarsson við afhendinguna:

Hlín Agnarsdóttir hefur jöfnum höndum starfað sem rithöfundur, þýðandi og leikhúsmanneskja, höfundur leikrita og leikstjóri. Ég get ekki stillt mig um að nefna frumraun hennar fyrir leiksvið, Láttu ekki deigan síga, Guðmundur sem mönnum er enn í fersku minni þótt senn sé liðinn mannsaldur síðan það var frumflutt í Stúdentaleikhúsinu. Skáldsögur hennar fram til þessa eru þrjár að tölu: Hátt uppi við Norðurbrún, Að láta lífið rætast og nú síðast Blómin frá Maó sem út kom á síðastliðnu hausti.

Aðrir styrkþegar voru Eiríkur Örn Norðdahl og Gunnar Hersveinn.

Síðast uppfært ( Föstudagur, 07. maí 2010 13:05 )