
Á fundi Norræna leikslistarsambandsins í Lundi, þann 7. maí, var tilkynnt hver hlyti norrænu leiklistarverðlaunin að þessu sinni. Komu þau í hlut finnska leikskáldsins Heini Junkkaala fyrir verkið „Kymmenen tikkua laudalla“ eða „Tíu prik á töflunni“. Verkið fjallar um stúlkuna Önnu sem fer í feluleik við Tukka, 13 ára bróður sinn, þegar þau eru í heimsókn hjá ömmu sinni eitt sumarið. Þegar leikur stendur sem hæst hverfur Tukka og Anna byrjar að bíða eftir að hann snúi aftur. Fjölskylda þeirra lætur sér hins vegar fátt um finnast, syngur og hámar í sig pönnukökur. Þá mætir boðflennan herra Svigi og stöðvar veisluna og segir Önnu að ástæðan fyrir því allt sé komið í vitleysu sé sú að hún hafi byrjað söguna í miðjunni í stað þess að segja hana frá byrjun. Kemur nú í ljós að hún varð fyrir erfiðri reynslu þegar þau mættu í heimsóknina, fyrr um sumarið, og vill ekki horfast í augu við hana. Með hjálp herra Sviga hefur hún að segja söguna eins og hún raunverulega gerðist, en það eru sambandserfiðleikar foreldranna sem hvíla á stúlkunni ungu. Verður leikurinn nú því furðulegri sem Anna reynir að leysa úr vanda mömmu sinnar og pabba.
Að þessu sinni voru tilnefningarnar í flokki leikrita fyrir unga áhorfendur og var Áslaug Jónsdóttir tilnefnd af hálfu Íslands fyrir leikritið „Gott kvöld“.
Aðrir sem tilnefndir voru
DANMÖRK, Line Mørkeby: 6 PLR K
NOREGUR, Stig Amdam: SIMONS HISTORIE
SVERIGE, Åsa Lindholm: OM FLICKOR KUNDE DÖDA





