
Ágætu félagar,
Félag leikskálda og handritshöfunda efnir til umræðufundar um inntak íslenskrar leikritunar á leikárinu sem nú er að ljúka. Framsögu hefur Þorgerður E. Sigurðardóttir bókmenntafræðingur og leiklistargagnrýnandi Víðsjár á Rás 1.
Þetta er hugsað sem tækifæri til að ræða saman og velta fyrir sér viðfangsefnum okkar; eflaust eru margar spurningar sem vakna og gaman að fá tækifæri til að velta þeim fyrir sér í hópi höfunda.
Fundurinn verður í Gunnarshúsi við Dyngjuveg fimmtudagskvöldið 10. júní og hefst kl. 20.
Léttar veitingar
Allir velkomnir, þ.e. takið endilega með ykkur gesti.
Kveðja,
Stjórnin





