Félag leikskálda og handritshöfunda FLH var stofnað 1974 upp úr eldra félagi leikskálda og hét upphaflega Félag íslenskra leikritahöfunda. Fram til ársins 2007 hét félagið Félag leikskálda á Íslandi. Rétt á aðild eiga höfundar sem hafa samið amk. tvö leikverk sem hafa verið sýnd á leiksviði, skrifað handrit fyrir sjónvarp eða kvikmynd. Sjá nánar um inntökuskilyrði í lögum félagsins.
Leikskáldafélag Íslands er lögformlegur samningsaðili við leikhús og ljósvakamiðla. Verkefni félagsins eru því einkum fólgin í samningagerð við atvinnuleikhúsin, Bandalag íslenskra leikfélaga, útvarps-og sjónvarpsstöðvar og framleiðendur leikinna kvikmynda og sjónvarpsefnis. Í samningamálum er eftir föngum haft samstarf og samflot við Rithöfundasamband Íslands þegar það á við. Á meðal verkefna félagsins er einnig að stuðla almennt að eflingu og viðurkenningu íslensks leikskáldskapar og kynna hann erlendis. Félagið vill auka hlut leikskálda við úthlutun starfslauna og hlut leikritunar í útflutningi íslenkra samtímabókmennta og hyggst ná markmiðum sínum m.a. með öflugri félagsstarfsemi og námskeiðahaldi.
Leikskáldafélag Íslands er aðili að Bandalagi íslenskra listamanna, Leiklistarsambandi Íslands, Nordisk dramatikerunion NDU (Norræna leikskáldasambandinu), FSE eða Fédération des Scénaristes d’Europe / Federation of Scriptwriters in Europe (Samtökum evrópskra handritshöfunda), vinnuhópi um þróun nýrrar norrænnar leikritunar á vegum Det Åbne teater í Osló og DramaDirekt, norrænum leikritabanka á veraldarvefnum.
Stjórn Leikskáldafélags Íslands skipa:
Hávar Sigurjónsson formaður
Sími: 587-7050, gsm: 898 3999
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Vala Þórsdóttir ritari
gsm: 868 6774
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Bjarni Jónsson gjaldkeri
gsm: 8458556
netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Hrafnhildur Hagalín meðstjórnandi
netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sigurjón B Sigurðsson meðstjórnandi
netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Heimilisfang:
Leikskáldafélag Íslands
Brekkubæ 15,
110 Reykjavík
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Veffang: http://www.leikskald.is
Vefstjóri: Hávar Sigurjónsson



Félagið

