
Myndefnið í merki Leikskáldafélagsins er fengið úr mynd í Íslensku teiknibókinni, pergamentshandriti frá 15. öld. Sveinn Einarsson lýsir myndinni í fyrsta bindi leiklistarsögu sinnar, Íslensk leiklist:
Þar eiga langur skeggkarl með öxi og grjótkastari í höggi við kynjaverur, mannshöfuð með fuglsbúk og einhverja mannveru sem líka kastar grjóti; sú er með stromphatt eða trjónu eða skaut og er í bandaskóm sem minna á fótabúnað trúða, en hvort tveggja mun þó hafa verið tískufyrirbæri. Þetta gerist á eins konar leiksviði, þ.e. undir pallinum er bekkur en öll myndbyggingin minnir á leiksvið.Í merki félagsins eru tvær fígúrur úr þessari mynd notaðar þ.e. grjótkastararnir svokölluðu. Það er ekki gott að segja hvað það er sem mennirnir eru að kasta en hvort sem það eru steinar, boltar eða tómatar þá er látbragð þeirra ekki sérlega ógnandi og minnir meira á leik en bardaga.
Hugmynd: Benóný Ægisson
Útfærsla: Þorlákur Lúðvíksson





