Evrópusamtök handritshöfunda, FSE, voru formlega stofnuð í Aþenu í júní 2001 til að starfa fyrir hönd um það bil 8000 handrtishöfunda á sviði kvikmynda og sjónvaprpsefnis vítt og breytt um Evrópu.
Aðild að FSE eiga eftirtalin landsfélög :
Belgía: Association des Scénaristes de l'Audiovisuel
Þýskaland: Verband Deutscher
Drehbuchautoren e.V.
Spánn: Federación de Asociaciones de Guionistas del Audio-visual (FAGA), sem samanstendur af eftirtöldum svæðisfélögum: Asociación Galega de Guionistas; Autores Literarios de Medios Audiovisuales;_ Escriptors Valencians de l'Audiovisual; Euskal Herriko Gidoigile Profesionalen Elkartea; Guionistes Associats de Catalunya
Finnland: Suomen Näytelmäkirjailijaliitto - Finlands Dramatikerförbund ry
Frakkland: Union-Guilde des Scénaristes
Ísland: Félag leikskálda og handritshöfunda
Írland: Irish Playwrights and Screenwriters Guild
Ítalía: Scrittori Associati Cinema e Televisione
Holland: Netwerk Scenarioschrijvers
Noregur: Norske Dramatikeres Forbund
Portúgal: Associacao Portuguesa de Argumentistas e Dramaturgos
Svíþjóð: Sveriges Dramatikerförbund
Serbía & Montenegro: Nezavisnost
Sviss: Scénario
Bretland: Writers' Guild of Great Britain
Forgangsmálefni FSE eru að treysta stöðu handritshöfundarins sem meðhöfundar að kvikmyndaverki; að berjast fyrir afnámi á fullnaðaruppkaupum réttinda (buy-outs) og koma í staðinn á kerfi sérstakra greiðslna fyrir hver afnot af verkinu ; og að beita sér fyrir ófrávíkjanlegum reglum um sæmdarrétt.
Markmið FSE eru:
- Að standa vörð um tjáningarfrelsi og frelsi til listrænnar sköpunar innan kvikmyndageirans.
- Að standa vörð um og stuðla að verndun þjóðmenningarlegrar sérstöðu og fjölbreytni meðal aðila á sviði kvikmynda.
- Að vekja athygli á störfum handritshöfunda.
- Að verja og vernda sæmdarrétt auk fjárhagslegra réttindia og hagsmuna handritshöfunda, hvar sem þeir starfa í kvikmyndaiðnaðinum.
- Að samræma löggjöf um höfundarrétt í Evrópu og meðal aðildarríkja Evrópusambandsins á grunni hagstæðustu kjara fyrir handritshöfunda
- Að koma á samvinnu við bæði einkaaðila og opinbera sem vinna að hliðstæðum málum í kvikmyndageiranum.
- Að styðja við bakið á aðildarfélögunum í hagsmunabráttu þeirra í hverju landi fyrir sig.
Samtökin munu beita öllum löglegum og réttmætum aðferðum til að ná þessum markmiðum.
Stjórn FSE skipa nú :
Christina Kallas, forseti (Grikkland)
Sveinbjörn Baldvinsson, varaforseti (Ísland)
Stanislav Semerdjiev, varaforseti (Búlgaría)
David Kavanagh, meðstjórnandi (Írland
Gino Ventriglia, meðstjórnandi (Ítalía)
Til að hafa samband:
Amélie Clément, framkvæmdastjóri
netfang: info (at) scenaristes.org
c/o UNI-Europa, Box 9;
31, rue de l'Hôpital; B-1000
Brussels, Belgium
Tel: 0032.2. 234-5654
Fax: 0032.2. 235 0861
http://www.scenaristes.org





