Heima Félagið Lög félagsins

Lög félagsins

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Endurskoðuð 2006

 

1. grein

Félagið heitir Félag leikskálda og handritshöfunda, skammstafað FLH.

 

2. grein

Heimilisfang félagsins og varnarþing er í Reykjavík.

 

3. grein

Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna leikskálda og handritshöfunda og verja rétt þeirra, m.a. með því að gera samninga við þá sem flytja verk félagsmanna. Félaginu er ætlað að beita sér fyrir kynningu á íslenskum leikverkum innan lands og utan og stuðla að því að íslensk leikhús og fjölmiðlar flytji sem mest af íslenskum leikverkum. Félagið skal leitast við að auka kynni þeirra er stunda leikritun og handritsgerð á Íslandi og vinna að því að bæta aðstöðu félagsmanna til að fylgjast með því sem er á döfinni meðal starfsbræðra í öðrum löndum. Félagið skal, eftir því sem tök eru á, senda fulltrúa á ráðstefnur og málþing og taka þátt í starfsemi svæðisbundinna og alþjóðlegra samtaka leikskálda og handritshöfunda.

 

4. grein

Meðlimur í Félagi leikskálda og handritshöfunda getur sá höfundur orðið er uppfyllir eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða:

 

a) Hefur skrifað eitt leikrit í fullri lengd(70 mínútur), eða tvö styttri, er sett hafa verið upp í atvinnuleikhúsi.

 

b) Hefur skrifað tvö leikrit í fullri lengd(70 mínútur), eða þrjú styttri, er sett hafa verið upp af áhugaleikfélagi.

 

c) Hefur skrifað tvö leikrit sem flutt hafa verið í hljóðvarpi, annað hið minnsta 25 mínútur að lengd.

 

d) Hefur samið handrit að tveimur framleiddum og útsendum sjónvarpsmyndum, önnur að minnsta kosti 25 mínútur að lengd.

 

e) Hefur samið handrit að tveimur stuttmyndum sem hlotið hafa opinbera dreifingu á Íslandi, önnur hið minnsta 25 mínútur að lengd.

 

f) Hefur samið handrit að einni bíómynd í fullri lengd sem hlotið hefur opinbera dreifingu á Íslandi.

 

Um öll skilyrðin gildir:

 

Sé fleiri en einn höfundur að tilteknu verki, reiknast framlag hvers höfundar hlutfallslega.

 

Sé um framhaldsþætti að ræða, er miðað við heildarlengd þáttaraðarinnar.

5. grein

Aðalfundur ákveður árgjald. Nöfn þeirra félagsmanna sem skulda árgjöld fyrir tvö ár eða fleiri, skulu sett á aukaskrá. Skal þeim tilkynnt þetta með hæfilegum fyrirvara fyrir aðalfund. Félagar á aukaskrá hafa ekki atkvæðisrétt á félagsfundum og eru ekki kjörgengir í stjórn eða til annarra trúnaðarstarfa. Hafi félagi verið á aukaskrá í 3 ár samfellt jafngildir það úrsögn úr félaginu. Skal viðkomandi tilkynnt þetta með sama hætti og þeim sem flytjast á aukaskrá. Skylt er að taka skriflega úrsögn félagsmanna til greina.

 

6. grein

Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda skipa 5 menn, formaður, gjaldkeri, ritari og tveir meðstjórnendur. Stjórnin er kjörin á aðalfundi til eins árs í senn, en formaður þó til tveggja ára.

 

7. grein

Aðalfund skal halda árlega að hausti og skal boða til hans skriflega eða með tölvupósti með minnst viku fyrirvara og telst fundurinn þá löglegur án tillits til fundarsóknar. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Á fundinum skýrir formaður frá starfi félagsins á árinu, reikningar félagsins skulu lagðir fram til samþykktar, stjórn kjörin og fjallað um tillögur til lagabreytinga.

 

8. grein

Félagsstjórn er skylt að boða til fundar ef helmingur félaga æskir þess skriflega. Alla fundi skal boða skriflega eða með tölvupósti með minnst viku fyrirvara. Fundur telst ályktunarhæfur hafi löglega verið til hans boðað. Afl atkvæða ræður úrslitum á félagsfundum, nema öðruvísi sé fyrir mælt í félagslögum. Á félagsfundum verða aðeins gerðar ályktanir um mál sem kynnt hafa verið í fundarboði.

 

9. grein

Félagsfundum stjórnar fundarstjóri sem fundurinn kýs og kveður hann sér fundarritara. Fundarstjóri sker úr öllu sem snertir lögmæti fundarins, samkvæmt ákvæðum félagslaganna, stjórnar umræðum og meðferð mála á fundum og atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla skal vera skrifleg ef einhver fundarmaður krefst þess.

 

10. grein

Fundargerð aðalfundar skal lesin og borin upp til atkvæða í byrjun næsta aðalfundar. Ritari félagsins skal varðveita allar fundargerðir og samþykktir aðalfunda, félagsfunda og stjórnarfunda.

 

11. grein

Breytingar á lögum Félags leikskálda og handritshöfunda verða ekki gerðar nema á lögmætum aðalfundi og þó því aðeins að 2/3 fundarmanna gjaldi þeim jáyrði sitt. Allar tillögur um lagabreytingar svo og aðrar veigamiklar tillögur, sem bera á undir atkvæði aðalfundar, skulu boðaðar í dagskrá fundarins.