Norræna leikskáldasambandið (Nordisk dramatikerunion, skammstafað NDU) er samband allra félaga leikskálda og þýðenda leikverka í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Sambandið var stofnað 1941 að frumkvæði sænska rithöfundarins og leikskáldsins Wilhelms Moberg. Upphaflegur tilgangur samtakanna var annarsvegar baráttan gegn fasismanum en hinsvegar áttu samtökin að hafa umboð fyrir norræn leikverk um allan heim. Nú á dögum er markmið NDU að verja höfundarétt norrænna leikskálda og berjast fyrir öðrum hagsmunamálum þeirra. Ný samtök geta gengið í NDU fallist stjórn þess á það.
Í stjórn NDU er stjórnarmaður frá hverju þátttökulandi, valinn af leikskáldafélagi hverrar þjóðar. Þjóðirnar skiptast á um stjórn sambandsins eftir ákveðinni röð: Svíþjóð, Ísland, Finnland, Danmörk, Noregur. Nú gegna Norðmenn formennsku fram til ársfundar 2010.
Nú eru eftirtalin félög í Norræna Leikskáldasambandinu:
Danska Leikskáldafélagið
Danske Dramatikeres forbund
Formaður: Per Schulz
Klosterstræde 24, DK-1157 Køpenhavn K, Danmark
Sími: +45-33 45 40 35, fax: +45-33 45 40 39,
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Leikskáldafélag Finnlands
Suomen Nytelmkirjailijaliiton - Finlands Dramatikerförbund
Formaður: Esko Salervo
Vironkatu 12 B, 13, SF-00170 Helsingfors, Finland
Sími: +358-90-135 6191 eða +358-90-135 6796, fax +358-90-135 6171
Leikskáldafélag Íslands
Formaður: Hávar Sigurjónsson
c/o Hávar Sigurjónsson, Brekkubær 15, 110 Reykjavík
Sími: +354-5877050 Mob: +354-8983999
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Norska leikskáldafélagið
Norske Dramatikeres Forbund
Formaður: Gunnar Germundsson
Postbox 579, Sentrum, N-0105 Oslo, Norge
Sími: +47-22-41 13 44, fax: +47-22-42 03 56
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Leikskáldafélag Svíþjóðar
Sveriges Dramatikerförbund
Formaður: Rolf Börjlind
Blå Tornet, Drottninggatan 85, S-111 60 Stockholm, Sverige
Sími: +46-8-21 33 10, fax: +46-8-613 39 79,
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.





