Heima Taxtar Ríkisútvarpið, sjónvarp

Taxti Ríkisútvarpsins, sjónvarps

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Fullbúin handrit að sjónvarpsleikritum, greiðsla fer eftir flutningstíma sem hér segir:

 

að 5 mínútum kr. 178.104

6 - 10 mínútur kr. 364.796

11 - 15 mínútur kr. 474.428

16 - 20 mínútur kr. 553.836

21 - 25 mínútur kr. 636.373

26 - 30 mínútur kr. 716.712

31 - 35 mínútur kr. 794.778

36 - 40 mínútur kr. 877.329

41 - 45 mínútur kr. 957.697

46 - 50 mínútur kr. 1.038.363

51 - 55 mínútur kr. 1.067.385

56 - 60 mínútur kr. 1.142.615

síðan hver mínúta á kr. 16.990

 

Um framhaldsmyndaflokka skal semja sérstaklega hverju sinni.

 

Fyrir annað leikið sjónvarpsefni, svosem skemmtiþætti, leikið efni sem skeytt er inn í ýmiskonar þætti, örleikrit, ofl. skal greitt skv. eftirfarandi gjaldskrá:

 

að 5 mínútum kr. 67.875

6 - 10 mínútur kr. 143.880

11 - 15 mínútur kr. 218.813

16 - 20 mínútur kr. 315.041

21 - 25 mínútur kr. 367.509

26 - 30 mínútur kr. 413.903

31 - 35 mínútur kr. 458.991

36 - 40 mínútur kr. 506.655

41 - 45 mínútur kr. 553.065

46 - 50 mínútur kr. 599.421

51 - 55 mínútur kr. 645.815

56 - 60 mínútur kr. 692.377

síðan hver mínúta á kr. 9.898

 

Fyrir endurflutning efnis í sjónvarpi skal greiða 20% af greiðslu fyrir frumflutning.

 

SAMNINGUR VIÐ RÍKISÚTVARPIÐ, SJÓNVARP

 

Ath. Hér er samningur milli Rithöfundasambands Íslands og Ríkisútvarpsins um greiðslur fyrir flutning ritverka í sjónvarpi í heild sinni. Á þessari síðu eru einungis tilgreindir taxtar fyrir leikið efni. Aðra taxta til höfunda er að finna á vefsíðu RSÍ.

 

Samningur milli Rithöfundasambands Íslands og Ríkisútvarpsins um greiðslur fyrir flutning ritverka í sjónvarpi.

 

 

1.gr.

 

Samningurinn endurnýjast sjálfkrafa um eitt ár í senn, hafi hvorugur samningsaðili látið í ljós skriflega ósk um endurskoðun hans tveimur mánuðum fyrir tilsettan tíma. Samningur þessi gildir um greiðslur fyrir flutning í sjónvarpi á ritverkum sem félagsmenn í Rithöfundasambandi Íslands hafa samið og eiga flutningsrétt að, ef um er að ræða:

 

a) Bókmenntaverk sem 23. gr. höfundalaga nr. 73/1972 tekur til.

 

b) Bókmenntaverk sem áður hafa verið birt, sbr. skilgreiningu í 2.gr. 3.mgr. höfundalaga nr. 73/1972.

 

c) Frumsamin bókmenntaverk sem ekki hafa áður verið birt hérlendis.

 

d) Þýðingar bókmenntaverka sem ekki hafa áður verið birtar.

 

e) Fullbúin handrit að sjónvarpsleikritum.

 

f) Annað leikið sjónvarpsefni

 

g) Leiksviðsleikrit í sjónvarpi.

 

 

2.gr.

 

Hér er átt við verk sem eru flutt (lesin), ekki leikin, í sjónvarp. Greiðslur til höfunda fyrir áður birt efni skv. 1.gr. a) og b) skulu vera sem hér segir:

 

1. - fyrir frumsaminn skáldskap (í óbundnu máli) kr. (sjá taxta RSÍ) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur.

 

2. - fyrir þýðingu á skáldskap (í óbundnu máli) kr. (sjá taxta RSÍ) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur.

 

3. - fyrir bundið mál kr (sjá taxta RSÍ) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur, þó ekki minna en kr. (sjá taxta RSÍ) Fyrir ljóðaþýðingar skal greiða sömu fjárhæð og fyrir frumort ljóð.

 

 

3. gr.

 

Fyrir bókmenntaverk sem ekki hafa áður verið birt hérlendis, skv. 1.gr. c) og d), skal greitt sem hér segir:

 

1.- fyrir frumsaminn skáldskap í óbundnu máli kr. (sjá taxta RSÍ) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur, þó ekki minna en kr. (sjá taxta RSÍ)

 

2.- fyrir þýðingar á skáldskap í óbundnu máli (sjá taxta RSÍ) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur.

 

3.- fyrir bundið mál greiðast kr. (sjá taxta RSÍ) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur, þó ekki minna en kr. (sjá taxta RSÍ) Fyrir ljóðaþýðingar skal greiða sömu fjárhæð og fyrir frumort ljóð.

 

 

4. gr.

 

Fyrir fullbúin handrit að sjónvarpsleikritum skal greiðsla fara eftir flutningstíma sem hér segir:

 

að - 5 mín. verk kr. sjá taxta

6 - 10 " " "

11 - 15 " " "

16 - 20 " " "

21 - 25 " " "

26 - 30 " " "

31 - 35 " " "

36 - 40 " " "

41 - 45 " " "

46 - 50 " " "

51 - 55 " " "

56 - 60 " " "

síðan hver mínúta sjá taxta

 

Um framhaldsmyndaflokka skal semja sérstaklega hverju sinni.

 

5. gr.

 

Fyrir annað leikið sjónvarpsefni, svosem skemmtiþætti, leikið efni sem skeytt er inn í ýmiskonar þætti, örleikrit, ofl. skal greitt skv. eftirfarandi gjaldskrá. 5% hækkun komi á þessa gjaldskrá að einu ári liðnu frá undirritun samnings.

 

að - 5 mín. verk sjá taxta

6 - 10 " " "

11 - 15 " " "

16 - 20 " " "

21 - 25 " " "

26 - 30 " " "

31 - 35 " " "

36 - 40 " " "

41 - 45 " " "

46 - 50 " " "

51 - 55 " " "

56 - 60 " " "

síðan hver mínúta sjá taxta

 

6. gr.

 

Um leiksviðsleikrit sem tekin eru upp á myndband eða kvikmynduð án teljandi breytinga á leikritinu, leikmynd, leikbúningum, tónlist eða öðru því er sviðsverkinu fylgir, á leiksviðinu sjálfu eða í myndveri, gildir sú meginregla að um þau skal samið sérstaklega, og falli þau ekki undir aðrar skilgreiningar eða taxtaflokka í þessum samningi.

 

Aðilar þessa samnings eru sammála um þann skilning, að leikverk sem tekið er til sjónvarpsflutnings með ofangreindum hætti, nær óbreytt frá sviðsgerð, falli undir skilgreiningu er nefna mætti afleidda notkun.

 

Samningsaðilum kemur saman um að leitast við að tryggja að í hverju tilviki komi fram einn aðili er fari með samningsumboð fyrir alla höfundarrétthafa á viðkomandi leiksviðsverki, og sé það hlutverk þess aðila að sjá til þess að höfundarrétthafar hafi gert með sér tryggt samkomulag um innbyrðis skiptingu á greiðslum áður en gengið er frá samningi við RÚV um upptöku, kaup á upptöku og flutning verksins í sjónvarpi.

 

Í beinu samhengi við þennan samning skulu aðilar semja viðmiðunarverðskrá er gildi um kaup RÚV á efni af þessu tagi.

 

7. gr.

 

Þegar um er að ræða sýningar á kvikmyndum, sjónvarpsmyndum eða upptöku á sviðsverki með verulegum breytingum frá sviðsgerð, skal hliðsjón höfð af samningi Rithöfundasambands Íslands við samtök kvikmyndaframleiðenda sem í gildi verður hverju sinni.

 

8. gr.

 

Samning draga að sjónvarpsleikritum, að frumkvæði RÚV.

 

a) Panti RÚV-sjónvarp sérstaklega drög (synopsis) að sjónvarpsleikriti af vissri lengd, greiðast fyrir þau 20% af samningsbundinni greiðslu fyrir handrit leikrits sömu lengdar.

 

b) Óski RÚV-sjónvarp eftir því að handrit verði unnið áfram, greiðast höfundi enn 20% áætlaðra höfundarlauna fyrir fullunnið handrit. Sjónvarpið hefur þó enn heimild á þessu stigi til að hafna handritinu eða samþykkja það til flutnings.

 

c) Ákveði RÚV-sjónvarp að handritið verði fullunnið til flutnings, greiðist fyrir það skv. taxta hér að ofan. Greiðslur skv. a) og b) liðum eru þá kaupauki fyrir viðkomandi verk.

 

9. gr.

 

Fyrir endurflutning efnis í sjónvarpi skal greiða 20% af greiðslu fyrir frumflutning.

 

10. gr.

 

Frestur sá sem RÚV hefur til að tilkynna höfundi hvort efni sem hann hefur boðið sjónvarpinu eða verið fenginn til að semja fyrir það, verður tekið til flutnings, er átta mánuðir.

 

11. gr.

 

Ef höfundur er viðstaddur æfingar eða vinnur að breytingu á verki sínu að ósk RÚV, skal greiða fyrir slíka vinnu eftir samkomulagi sem gert skal fyrirfram.

 

12. gr.

 

Jafnskjótt og Ríkisútvarpið hefur ákveðið að sýna verk í sjónvarpi skal um það gerður skriflegur samningur milli höfundar og Ríkisútvarpsins. Sé ekki annað tekið fram, skal RÚV heimill endurflutningur gegn greiðslu skv. öðrum ákvæðum þessa samnings. Um framsal flutningsréttar til útvarpsstöðva í öðrum löndum skulu gilda ákveðin hlutföll skv. EBU-reglum.

 

13. gr.

 

Um flutning í sjónvarpi á öðrum bókmenntaverkum en upp eru talin hér að framan, sem félagsmenn í RSÍ eiga flutningsrétt að, fer eftir lögum eða reglum þar sem um þær er að ræða, eða eftir samkomulagi hverju sinni.

 

14. gr.

 

Flytji höfundur sjálfur í sjónvarpi efni sem hann hefur samið eða þýtt, skal honum greidd sama þóknun og leikara væri greidd fyrir flutninginn eftir samningi Félags íslenskra leikara og Ríkisútvarpsins (sjá taxta RSÍ). Í tengslum við útgáfu verka er Sjónvarpinu þó heimilt í kynningarskyni, fallist höfundur áþað, að birta hluta úr verkum höfundar, með upplestri hans eða annarra, í fréttatengdum dagskrárliðum, án þess að greiða sérstaklega fyrir það.

 

15. gr.

 

Hafi RÚV greitt fyrir verk en ekki flutt það fellur réttur þess niður þegar þrjú ár eru liðin frá kaupunum og er höfundi (þýðanda) þá heimilt að ráðstafa verkinu annað, eða selja RÚV það aftur. Þetta gildir um allt efni sem samningur þessi tekur til frá undirritun hans, nema sérstaklega hafi verið samið um annað.

 

16. gr.

 

Auk gjalds skv. því sem hér að framan segir, skal frá 1. október 1996 greiða verðlagsuppbót skv. launavísitölu sem Hagstofa Íslands gefur út mánaðarlega. Breytingar á töxtum skal gera ársfjórðungslega skv. framangreindri launavísitölu.

 

17.gr.

 

Gildistími samningsins skal vera tvö ár.

 

Bókun I: Ríkisútvarpið lýsir yfir vilja sínum til að auka framleiðslu á leiknu efni fyrir sjónvarp.

 

Bókun II: Ríkisútvarpið samþykkir fyrir sitt leyti að upplýsa alla dagskrárgerðarmenn á verktakasamningi við RÚV um þennan samning og skylda þá til að hafa hann í heiðri þegar þeir semja við rithöfunda.

 

Reykjavík 12. september 1996